Bugg námskeið byrjendur I framhaldið
June 13 @ 16:30 – 18:00
Vegna fjölda áskorana þá höldum við áfram með Buggnámskeið fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref sem og lengra komna. Ekki er um eiginlegt framhaldsnámskeið að ræða, en við munum byggja ofan á þær “varíasjónir”, sem leiðbeint var með á síðasta námskeiði. Vonumst til að sjá sem flesta. Áríðandi er að skrá sig þannig að við getum kallað út “varamenn” eða “varakonur” eftir því sem við á. Ekki nauðsynlegt að hafa dansfélaga.
Námskeiðið er laugardaginn 13. júní sem og sunnudaginn 14. júní og hefst kl 16:30 báða dagana. Heildarverð er kr. 5.000,-. Hægt er að greiða á staðnum eða með millifærslu.
Sænskt bugg byggist á einföldum gönguskrefum en til eru ótal dansafbrigði sem stöðugt er hægt að bæta við eftir því sem færnin eykst. Hentar öllum aldurshópum því þessi dans hentar við nánast alla tónlist, allt frá ljúfum rúmbutakti og upp í hraðasta swingtakt. Til þess að skrá sig á námskeið, smellið á “GOING”
Bugg námskeið
Byrjendur I framhald fyrir þá sem lokið hafa byrjendatíma í bugginu eða hafa kynnst buggi áður
Bankaupplýsingar
Hægt er að leggja inn á reikning Komið og Dansið.
Banki: 0111-26-529108
kt 480192-2229
Tilgreinið fyrir hvaða viðburð greitt er