Skip to content
Komið og Dansið
  • Heim
  • Á döfinni
  • Námskeið
  • Netskráning
  • Dansferðir
  • Myndir
  • Prentuð Dagskrá
  • FréttirExpand
    • Dansform
    • Hafa samband
    • Um okkur
Komið og Dansið

Hafa samband

.

Eru einhverjar spurningar?
Hafið samband!

Endilega sendið okkur skilaboð, eða hafið samband með því að koma eða hringja. Fjöldi námskeiða er í boði. Einnig bjóðum við upp á dansleiki að minnsta kosti einu sinni í viku.

Námskeiðin eru fjölbreytt og skemmtileg og henta öllum aldurshópum.

Algengar spurningar

Hér eru nokkrar algengar spurningar, sem og gagnlegar upplýsingar um Komið og Dansið.

Komið í heimsókn til okkar í Álfabakka 12, sendið okkur fyrirspurn eða hringið. Við erum ávallt reiðubúin að leiðbeina.

Ekki er nauðsynlegt að koma með dansfélaga. Námskeiðin eru þannig upp byggð að við skiptum oft. Þannig náum við betri tökum á að tileinka okkur réttu sporin og ná betri tökum á dansinum. Einnig er að sjálfsögðu í lagi að koma með dansfélaga og eftir atvikum dansa einungis sinn dansfélaga án skiptinga.

Áður en þú mætir þarftu að hafa sérstaklega í huga að vinsamlegast nota ekki ilmefni, né rakspíra. Það getur truflað aðra gesti vegna ofnæmisviðbragða.

Æskilegt er að taka með sér hreina aukaskó til að nota á dansgólfinu.

Fjöldi námskeiða eru í boði. Til dæmis, sænskt Bugg, Línudans, Swing, “Two Step”, “Verðum ballfær”. Einnig eru sérstakir aðrir danshópar að bjóða upp á námskeið, s.s. Salsa, argentínskan Tango, Bachata, svo eitthvað sé nefnt.

Samtökin bjóða einnig barnanámskeið fyrir grunnskóla og sérstök námskeið fyrir nemendur framhaldsskóla. Við minnum á sérstök tilboð til starfsmannafélaga og hópa sem leiða til lægri námskeiðsgjalda, og möguleika á að halda námskeiðin í eigin húsakynnum sem lækkar gjöldin enn frekar. Kynningar á námskeiðsdönsum eru í boði fyrir stjórnir félaga og starfsmannastjórnir. Námskeiðin eru kjörin vettvangur fyrir hópa, vinnufélaga, saumaklúbba og fjölskyldur til að gera eitthvað saman, stutt, ódýrt og skemmtilegt. Námskeiðin henta vel þeim sem lítið eða ekkert hafa dansað. 

Netfang

kod@komidogdansid.is

Staður

Álfabakki 12, 3ja hæð
(gengið inn Landsbankamegin)
109 Reykjavík
ICELAND

Hringið núna

+(354) 625 5775

Komið og Dansið
  • Álfabakki 12, Mjóddin, 3ja hæð
  • 625 5775
  • kod@komidogdansid.is

© 2025 Komið og Dansið

Facebook YouTube Instagram
Scroll to top
  • Heim
  • Á döfinni
  • Námskeið
  • Netskráning
  • Dansferðir
  • Myndir
  • Prentuð Dagskrá
  • Fréttir
    • Dansform
    • Hafa samband
    • Um okkur