Ferðalög
Komið og Dansið býður ferðir af ýmsu tagi

Dansferð til Calpe á Spáni
Hin árlega dansferð til Calpe á Spáni verður farin á næsta ári. Ferðin er frá 6. – 20. maí 2026
Opið er fyrir bókanir. Gestir þurfa að panta sjálfir flug til Alicante. Komið og Dansið á Íslandi aðstoða við bókanir á viðburði og hótel í samvinnu við Kom og Dans í Noregi.
“Sydendansen” árið 2026 hefst miðvikudaginn 6. maí (með velkomin veislu að kvöldi) og stendur til miðvikudagsins 20. maí (útskráning). Dagskráin mun í grundvallaratriðum fylgja sama mynstri og fyrri ár. Veldu dagsetningar og lengd dvalar sem hentar þér (lágmark 5 nætur). Við aðstoðum við bókanir í gegnum Kom og Dans í Noregi.
Hægt er að hafa samband beint við Gunnlaug í síma 698 0330 og aðstoðar hann við skráningar til Calpe 2025 í gegnum Kom og Dans í Noregi.

Calpe kletturinn
Dansbandsveckan í Malung 2026
Dansbandsveckan í Malung, Svíþjóð
Frábær ferð til Malung í Svíþjóð, sem farin er árlega við góðar undirtektir. Hvetjum alla til að skrá sig sem allra fyrst.
- 82 þekktustu hljómsveitir Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og Finnlands
- Gisting í 4 manna íbúðum
- Rúta til og frá Osló
- Lágmarksfjöldi 20 manns
Einnig er hægt að skrá sig eða senda fyrirspurn á Komið og Dansið kod@komidogdansid.is
Eða hringið í síma 625 5775 og fáið nánari upplýsingar hjá Sólrúnu.